Partners+

Rated 5.00 out of 5 based on 6 customer ratings
(6 umsagnir viðskiptavina)

8.150 kr.

Aldur: 7 ára og eldri
Fjöldi: 6 leikmenn
Spilatími: 45-60 mín.
Höfundur: Thomas Bisgard

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: NGA6026 Flokkur: Merkimiðar: , , Framleiðandi:

Þið finnið íslenskar reglur á spilavnir.isVinsæla fjölskylduspilið Partners er nú til í útgáfu fyrir sex leikmenn.

Samvinna og útsjónarsemi

Partners er borðspil þar sem spilað er í tveimur tveggja manna liðum. Spilinu er best lýst sem eins konar lúdó með spilum sem koma í stað teninga. Auk þess eru ýmis spil sem hægt er að nota til að ná forskoti eða klekkja á andstæðingunum. Spilið snýst um að vera á undan mótliðinu að koma öllum peðum liðsins á lokareit. Mikilvægast er að vinna saman sem félagar og beita réttu kænskubrögðunum.

Aldur: 7 ára og eldri

Fjöldi: 6

Spilatími: 30-60 mín.

6 umsagnir um Partners+

  1. Einkunn 5 af 5

    Linda

    Stærri útgáfa af Partners, með aðeins fleiri möguleikum í leiknum. Geggjað þegar fleiri eru til í að spila.

  2. Einkunn 5 af 5

    Gunnar Torfi

    Partners er uppáhalds spil fjölskyldunnar! Sex manna er jafnvel skemmtilegra en fjögurra manna.

  3. Einkunn 5 af 5

    Kolbrún

    Mér finnst nauðsynlegt að eiga bæði Partners fyrir 4 og fyrir 6 svo hægt sé að velja á milli eftir hópastærð. Þetta gengur þó eins fyrir sig, eins og lúdó, tveir vinna saman, fólk er rekið heim og allir reyna að ná köllunum sínum í hús. Mér finnst þó 6 manna partners skemmtilegra því það tekur aðeins lengri tíma, stærri hringur sem þarf að fara áður en maður kemst heim.

  4. Einkunn 5 af 5

    Magnús

    Gaman að eiga stærra partners fyrir stærri vinahópa og skemmtilegar viðbætur.

  5. Einkunn 5 af 5

    Rúnar Þór

    Eins og ég sagði um Partners… þá er þetta eins og Ludo nema mun betra því þetta krefst samvinnu og Partners + er enn betra þar sem fleiri geta spilað saman og gert leikinn enn lengri, skemmtilegri og spennandi

  6. Einkunn 5 af 5

    Eyrún Sara Helgadóttir

    Ég elska Partners+, skemmtilegt, keppnis og samvinnuspil. Allt getur breyst á augastundu, maður spyr ekki að leikslokum! Mæli 100% með þessu fyrir fjölskylduna eða vinahópinn.

Skrifa umsögn

Þér gæti einnig líkað við…

  • Partners

    Partners

    Fjölskylduspil
    Einkunn 4.89 af 5
    7.350 kr.
Karfa