Gartenbau

8.260 kr.

Aldur: 14 ára og eldri
Fjöldi: 2-4 leikmenn
Spilatími: 30-60 mínútur
Hönnuður: David Abelson, Alex Johns

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: TFC8681 Flokkur: Framleiðandi:

Gartenbau er 2-4 manna spil þar sem þið leggið niður flísar í safn til að mæta vaxandi kröfum blómanna sem dregin eru. Tvöföld hringbraut með þremur lögum af flísalagningu er kjarninn í spilinu.

Þið eruð í hlutverki garðyrkjumanns, og reynið að munda grænu fingurnar ykkar til að rækta upp þroskaðan garð í góðu jafnvægi áður en ræktunartímabilinu lýkur.

Þið munuð sá fræjum og rækta fjölda mismunandi planta til að fylla út í garðinn. Að auki, ef ykkur tekst að mæta skilyrðum blómanna, þá fáið þið virðingarstig fyrir afrek ykkar í garðinum.

Það ykkar sem fær flest virðingarstig er krýnt Garðyrkjumeistarinn.

Gartenbau gerist á seinnihluta 19. aldar og eru allar teikningar í spilinu miðaðar út frá því tímabili. Spilið er tileinkað öllum óþekktum listamönnunum sem sköpuðu dásamleg verk fyrir fræ- og plöntuskrár þess tíma, og settu mark sitt á fallegt tímabil í garðyrkjusögunni.

VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR

  • 2023 Mensa Select – Sigurvegari

Aldur: 14 ára og eldri

Fjöldi: 2-4

Spilatími: 30-60 mín.

Útgáfuár: 2022

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Gartenbau”
Karfa