Harmonies (ísl.)

7.980 kr.

Aldur: 8 ára og eldri
Fjöldi: 1-4 leikmenn
Spilatími: 35-45 mínútur
Hönnuður: Johan Benvenuto

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: LIBTL01IS Flokkur: Merkimiðar: , , , Framleiðandi:

Harmonies er aðgengilegt og fallegt spil — með íslenskum reglum — sem hentar vel fyrir tvo til fjóra leikmenn.

Í Harmonies byggið þið landslag með því að setja litaðar flísar á spjaldið ykkar og búa til kjörlendi fyrir dýrin ykkar. Til að fá sem flest stig og sigra spilið, þá þurfið þið að blanda kjörlendunum á klókan hátt, og hafa eins mörg dýr á þeim og þið getið.

Þegar þú átt leik, þá velur þú þrjár flísar sem þú raðar eins og þú vilt á spjaldið þitt, til að reyna að safna eins mörgum stigum og þú getur. Á sama tíma máttu velja þér eitt af fjórum dýraspilum sem eru í boði. Þau spil sýna sérstaka röðun á flísum sem laðar að sér ákveðna dýrategund, og gefur þér stig sem aðrir hafa ekki aðgang að.

Spilinu lýkur þegar eitthvert ykkar á aðeins tvö pláss laus á spjaldinu sínu, eða þegar pokinn af flísunum klárast. Það ykkar sem fær flest stig sigrar spilið.

VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR

  • 2025 Lys Initié – Úrslit
  • 2025 Hungarian Board Game Award – Sigurvegari
  • 2025 As d’Or – Jeu de l’Année Initié – Tilnefning
  • 2024 Swiss Gamers Award – Sigurvegari
  • 2024 Spiel des Jahres – Meðmæli
  • 2024 Guldbrikken Best Adult Game – Tilnefning
  • 2024 Golden Geek Medium Game of the Year – Sigurvegari
  • 2024 Golden Geek Best Board Game Artwork & Presentation – Tilnefning
  • 2024 Board Game Quest Awards Best Casual Game – Tilnefning

Aldur: 8 ára og eldri

Fjöldi: 1-4

Spilatími: 30-60 mín.

Útgáfuár: 2024

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Harmonies (ísl.)”
Karfa