Náttúruval

4.650 kr.

Aldur: 6 ára og eldri
Fjöldi: 2-10 leikmenn
Spilatími: 15 mín.
Höfundar: Valborg Sturludóttir, Rökkvi Þór.

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: VAL-46818 Flokkur: Merkimiðar: , Framleiðandi:

Íslenskt spil sem byggir á raunverulegum vísindagögnum um dýr frá öllum heimshornum.

Hvert ykkar dregur fimm spil á hendi. Þegar þú átt leik, þá velur þú flokk eða kastar teningunum. Næst veljið þið spil af hendi sem þið teljið líklegast til að vinna þennan flokk og spilar því út á grúfu. Þegar þið hafið öll lagt út spil, snúið spilunum við og berið saman hæsta/lægsta gildir. Það ykkar sem sigrar tekur sitt spil sem stig.

Þið ákveðið fyrir spilið upp á hve mörg stig þið ætlið að spila, og þegar því er náð er sigurvegarinn fundinn.

Í spilinu eru eftirfarandi flokkar:

  • Fræðiheiti: Lengd fræðiheitis, fjöldi stafa
  • Afkvæmi: Fjöldi afkvæma að meðaltali í einu goti
  • Líftími: Meðallíftími í árum (í náttúrunni)
  • Lengd: Líkamslengd fullorðins dýrs, eins og hún er mæld hjá dýrinu, frá toppi til táa eða yfir skelina og þess háttar
  • Fætur: Fjöldi fóta
  • Þyngd: Meðalþyngd fullorðins dýrs í kílóum

Með reglunum fylgja 5 afbrigði af spilinu, meðal annars til að geta spilað við börn á leikskólaaldri.

https://www.tiktok.com/@natturuval/video/7417164366778354976?is_from_webapp=1&sender_device=pc

Leiðréttingar á spilum

  • Kría (þyngd): Hér varð innsláttarvilla, krían vegur einungis 90gr en ekki heil 900gr og því á að standa þarna 0,09-0,120kg
  • Húsfluga (þyngd): Hér er verið að sýna vísindalegt snið á tölunni, talan er rétt en getur verið erfitt að lesa hana! Það sem stendur er að það á að setja 5 núll fyrir framan þessa tölu og fá þannig þessa ofsa smáu tölu 0,000012kg

Aldur: 6 ára og eldri

Fjöldi: 2-10

Spilatími: Undir 30 mín.

Útgáfuár: 2026

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Náttúruval”
Karfa