Take Time

5.250 kr.

Aldur: 10 ára og eldri
Fjöldi: 2-4 leikmenn
Spilatími: 30 mín.
Höfundur: Alexi Piovesan, Julien Prothière

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: LIBTT0101 Flokkur: Merkimiði: Framleiðandi:

Take Time er aðgengilegt og skemmtilegt samvinnuspil þar sem þið skiptist á að leggja niður tólf spil, eitt spil í einu, í kringum klukku með sérstökum reglum fyrir hvert próf. Í spilinu eru 40 klukkur — próf sem þið spilið í gegnum.

Tíminn sjálfur er að leggja fyrir ykkur próf!

Take Time er samvinnuspil sem fer með ykkur í ævintýri þar sem hver áskorunin rekur aðra í einstökum heimi. Þið ferðist saman sem teymi í gegnum táknræna veröld sem hver tengist lykilstöðum í ljóðrænu ferðalagi frá „vöknun“ til „endurfæðingar“.

Take Time er meira en kænskuspil — það er sameiginlegt ferðalag. Spil sem fær ykkur til að hægja á ykkur, taka inn andrúmsloftið, ræða saman og skilja hvert annað, og byggja upp traust. Með hverri spilun kemur nýr rammi sem kallar á ferska hugsun, og þið þurfið að aðlagast til að komast áfram.

Hver klukka kemur með nýrri upplifun. Undir einfaldleikanum liggur einstök ásköorun sem er hönnuð til að prófa hæfileika ykkar í að sjá fyrir, hlusta og hugsa eins og hópur. Take Time fagnar samskiptum, sameiginlegum uppgötvunum og ákvörðunum teknar sem lið. Aðgengilegt spil sem hægt er að spila aftur og aftur.

Aldur: 10 ára og eldri

Fjöldi: 2-4

Spilatími: Undir 30 mín.

Útgáfuár: 2025

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Take Time”
Karfa